
Hæ hæ!
Til hamingju með þennan merka dag í sögunni!
Því í dag eru nefnilega 67 ár síðan að hetja sem nefnd var Carlos Ray Norris (aka Chuck Norris) fæddist í þennan heim(1940). Það eru ekki margir sem hafa lifað það af að hafa slegist við Bruce Lee og bjargað heiminum óteljandi sinnum frá hryðjuverkamönnum, geimverum og öxulveldum hins illa.
Og þar að auki leikið í auglýsingum stofnað sjóði til styrktar börnum með hin og þessi vandamál og sjúkdóma, gefið út dagatöl og ótal margt fleira. Og samt haft tíma til að hanna og framleiða sérdeilisprýðilegar gallabuxur eða
"Action Jeans"sem sjást hér á myndinni.
Hef svo sem ekki neinar fréttir héðan úr Borg óttans að þessu sinni enda vill ég ekki skemma afmælisdag kappans með einhverju bulli. En ég mæli með allir skelli sér út á næstu video leigu og taki eins og tvær til þrjár spólur með hetjunni, held bara að það sé ekki hægt að verja helginni betur en að liggja uppi í sófa og virkilega lifa sig inní mynd með Chuck Norris.
Forsetinn kveður!
Ps.
Dagatölin sem Chuck gaf út voru bara með 364 dögum í árinu því fyrsti april var tekinn út og þegar hann var spurður hvers vegna svaraði hann um hæl "Because nobody fools Chuck Norris"
3 ummæli:
“When God said "Let there be light" Chuck Norris said "Say Please."”
Spurning um að senda kappanum kveðju á fan@chucknorris.com.
F.Y.I Steinari bakaði tertu og pönnsur í gær. Þegar ég átti afmæli keypti hann súkkulaðiköku í súpermarkaði!
It makes one think!
hehehe . . já þetta er snillingur !
Skrifa ummæli