laugardagur, 31. mars 2007

Svona er þetta nú skrítið!

Heil og sæl.
Hér skín sólin alla daga og manni finnst sumarið eiginlega vera komið þó það sé bara að rétt að nálgast páska.
Lífið hér í Álaborg gengur bara sinn vanagang.
Það er búið að vera gaman í skólanum í vikunni. Er byrjaður að vinna í þessu verkefni sem ég skrifaði um í síðustu færslu, og bara ágætis grúbba held ég. Nú eru hinir í bekknum lika farnir að fá praktikpláss, eða 7 af 18 komnir með pláss. Kennararnir segja að það aldrei hafa gerst að svo margir eða bara ekki neinn yfirhöfuð hafi verið kominn með pláss fyrir páska fyrr.
Ég hef stundum verið að pæla svolítið í þessu með unga fólkið, tískuna, hárgreiðslur og fleira og hvað manni finnst unga fólkið í dag furðulegt.
En svo vorum við konan að ræða þessi mál aðeins í gær og komumst að trúlegri niðurstöðu um þetta allt saman að mér fannst.
Niðurstaðan var sú að sennilega er það maður sjálfur sem situr eftir á meðan unga fólkið og tískan taka fram úr manni. Og sennilega hefur þetta líka eitthvað með aldurinn og kynslóðabilið að gera, manni finnst maður sjálfur alltaf vera 19 ára og svaka hipp og cool, en sennilega er maður bara gamall og púkó í augum unga fólksins í dag og mér sem fannst ég ennþá tilheyra unga fólks hlutanum af samfélaginu. En er þetta kannski ekki bara líka svona hjá öllum öðrum foreldru, þegar börnin koma hefur maður bara ekki tíma til að fylgjast með tískustraumunum og öllu þessu sem maður fylgdist með áður. Sennilega var þetta líka svona hjá mínum foreldrum þegar ég sjálfur tók upp á því að fylgja einhverjum skrítnum tískubylgjum eins og pönk og rokktískunni á þeim tima og líka foreldrum þeirra þegar hippatiminn var á hæðsta stigi.
Kannski er þetta líka partur í því að verða fullorðinn?
Ætli maður sé ekki bara orðinn dæmigerður ''vísitölufjölskyldumaður''
En þetta er auðvitað bara pæling.

Forsetinn kveður!

Ps. munið að kvitta í comment dálkinn hér að neðan.

þriðjudagur, 27. mars 2007

Kominn tími til !!



Hæ Hæ !!!!!

Flott grein um Inga þór í fréttablaðinu á sunnudaginn, það var tími til kominn að einhver reif sig upp af rassgatinu og kom með raunverulega mynd af því hvernig er að vinna á alþjóðaflugvellinum í Kabúl og greindi frá því hversu mikil endemis vitleysa þessi videomynd sem tekin var af okkur sem vorum vinna þarna úti sumarið 2004 var. Og að íslenskir friðargæsluliðar sé ekki þarna í einhverjum Rambóleik!
Já Ingi þór klikkar ekki á því!Og ekkert smá flottur
með skeggið.
Þessa grein er finna með því að smella á linkinn hérna fyrir ofan og fletta á síðu 18 í fréttablaðinu á sunnudaginn.

Held bara að sumarið sé komið hérna í Danaveldi, búið að vera tíu til fimmtán stiga hiti og sól í nokkra daga. Svo maður er búinn að vera heilmikið úti, að taka aðeins til í garðinum og svona.
Annars er maður bara að dúttla í skólanum vorum að byrja á nýju projekti í dag þar sem við þurfum að hanna og teikna gestahús við sumarhús og þurfum að fylgja allslags lögum og reglugerðum við að finna út úr því, hljómar kannski ekki mjög spennandi en mér finnst það nú samt og mjög gaman að vinna í svona grúbbuvinnu þar sem maður fær tækifæri á að vinna með einhverjum nýjum í hverju verkefni.
Eini gallinn við svona grúbbuvinnu er að það eru svona einstaka bjánar sem ná að fljóta með án þess að vita neitt í sinn haus sem er mjög leiðinlegt fyrir okkur hin sem neyðumst til að halda þessum bjánum uppi ef við lendum með þeim í grúbbu. Ég var svo óheppinn að fá einn bjánann í mína grúbbu svo næstu vikur gætu orðið strembnar fyrir okkur hin í grúppunni, þó svo við höfum nú fengið skárri bjánann af tveimur slæmum.
Og svona fyrir þá sem ekki vita þá er ég að læra Teknisk Design við Aalborg Tekniske Skole.
Allt orðið niðurnelgt með praktíkina fór á fund með skrifstofustjóra og teiknistofustjóra verkfræðistofunnar í dag og við skrifuðum undir samninginn.
Jæja þá er þetta nú orðið gott að sinni!(er kominn með krampa í fingurnar á þessu pikki)


Forsetinn kveður !!!!!
ps. Munið að kvitta!!!!

fimmtudagur, 22. mars 2007

Frábærar fréttir!!!!!!!!!

Heil og sæl!!!
Nú hef ég frábærar fréttir að færa!
Ég hef loksins fengið Praktik pláss!!!!!!!!!!!
Og það hjá fyrirtækinu OBH Gruppen sem mig langaði mest að vera í praktik
hjá (ÞVÍLÍK SNILLD).
'Eg er ekkert smá ánægður með þetta. Nú er bara aðstanda sig í skólanum fram að sumri. Þetta léttir óneitanlega á taugunum hjá manni, að þurfa allavega ekki að hugsa meira um þetta og geta þá frekar einbeitt sér meira að skólanum. En nú þarf ég auðvitað að skrifa til þeirra sem ég var í viðtali hjá í gær og eins þeim í Frederikshavn kommune sem voru búnir að boða mig í viðtal í næstu viku til að segja þeim að ég sé kominn með praktik pláss annarstaðar. Ef einhverjum langar að fræðast um OBH þá á að vera hægt að smella á bláa linkinn hérna fyrir ofan.
Annars er allt það besta að frétta héðan úr Álaborg. Veðrið, sól og blíða ég held bara að sumarið sé við að bresta á.

Forsetinn kveður!!!!!
(með sólheimaglott í sólinni!)

Ps. Munið að kvitta!!!!!

miðvikudagur, 21. mars 2007

Til Hamingju Ísland!!!!

Til hamingju allir íslendingar með lögleiðingu vændissins nú erum við á góðri leið með að komast á kortið. Nú hlítur Reykjavík að geta kallast heimsborg, það eina sem vantar er lögleiðing kannabisefna og þá er þetta komið.
Þá er spurning um að breyta nafni höfuðborgarinnar í Amstervík eða Reykjardam.
Smá pæling um hvernig þetta verður svo með vændiskonurnar ganga þær beint inn í Eflingu eða hvað annað stéttarfélag eða verða þær að stofna sitt eigið og hvernig verður svo með launataxta vændiskvenna, eða verða þær verktakar.
Er bara ekki alveg að skilja þetta, það má ekki drekka áfengi fyrr en maður er orðinn 20 ára en maður má stunda vændi sér til framfærslu þegar maður er orðinn lögráða (18 ára). Eða verður eitthvað sérstakt aldurstakmark í vændinu til dæmis 20 ára eins og með áfengi, Hummmm....

Yfir í þetta venjulega!
Veðrið er búð að vera ljómandi gott síðustu daga.
Ég fór með krakkana í smá skógarferð um síðustu helgi í skóg hérna rétt hjá við lítinn bæ sem heitir Gistrup, krökkunum fannst ægilega gaman.
Fór í eitt praktikpláss viðtal í dag hjá fyrirtæki sem heitir Pedershaab og fannst bara ganga rosavel en þeir framleiða vélar til að framleiða steypurör og brunna eða steypt skólprör eins og flestir þekkja. Pedershaab eru víst fremstir í heiminum í framleiðslu á vélum að þessu tagi og eru sífellt að þróa oghanna nýjar vélar á þessu sviði svo þetta gæti verið spennandi staður að vinna á, en þetta fyrirtæki er í Brønderslev sem er í um það bil hálftíma ökufæri frá Álaborg en um ein klukkustund í strætó og lest svo það yrði smá ferðalag fyrir mann ef maður færi þangað. Er nú samt að vona frekar að ég fái jákvætt svar verkfræðistofuni á undan en þetta hlítur að skírast á næstu dögum.
Kem með nýar fréttir um leið og þær gerast!

Forsetinn kveður!

Ps. Munið að kvitta í comments hnappinn, en hann er staðsettur fyrir neðan hverja færslu!!!

laugardagur, 17. mars 2007

Jæja!

Heil og sæl!

Allt gott að frétta héðan úr höfuðborg norður Jótlands.
Búinn að vera svolitil pressa á manni í skólanum síðustu vikur því við höfum þurft að skila þremur verkefnum síðan ég skrifaði síðast. Smá mont, mín gruppa fékk lang bestu gagnrýnina fyrir gírkassa verkefnið sem ég var búinn að segja frá hér á síðunni áður þó að væru auðvitað eitthvað af villum svona hist og her, mjög gaman þegar manni gengur vel, peppar mann líka aðeins upp í þessu. Það er búið að vera mjög gaman í skólanum núna þar sem við erum líka aðeins farinn að fá að spreita okkur á að að teikna í þrívídd.
Er búinn að fara í eitt viðtal vegna praktíkpláss, mér fannst það ganga mjög vel en nú verður maður bara að bíða eftir svari, á að fá svar innan tíu daga. Þetta viðtal var hjá stóru verkfræði fyrirtæki hér í Álaborg, er búinn að fá annað viðtal núna 27 mars hjá kommúnunni í Frederikshavn, ég læt vita hvernig það fer. Vildi að stundum að mér hefði þótt svona gaman í skólanum þegar ég var yngri þá hefði maður kannski lært eitthvað, td. verið betri í dönsk en það er nú allt að koma hjá manni.
Ótrúlega fyndið hvað maður er orðinn gamall miðað við þessa táninga sem eru með manni í skólanum og mér finnst táningarnir í dag líka öðruvísi en fyrir fimmtán árum þegar ég var 15, man til dæmis ekki eftir því að hafa þurft að bíða í röð til að komast á klósettið vegna þess að allir strákarnir lafa fyrir framan speglana að laga á sér hárið með allskyns klístur efnum, þetta heitir að vera metrosexual held ég. Minnir að 91´hafi strákar bara verið með annað hvort stutt eða sítt hár og ekki lagt neitt meiri pælingu í það. En það er kannski bara ég sem er farinn að gleyma sökum elli.
Annars gengur bara allt sinn vana gang Dísa er á fullu að skrifa verkefnið sitt, Ilmur er búin að vera síðustu tvær vikur í gesta húsinu, og er búin að vera mjög ánægð þar enda fullt af krökkum að leika við þar.
Axel er í ströngum æfingum fyrir "Scenen er din" núna 23 mars í skólanum þessa dagana það er svona hæfileikasýning þar sem sem krakkarnir stíga á svið og syngja og dansa fyrir foreldra, kennara og aðra nemendur, við hlökkum mikið til. Svo var hann á handbolta móti um síðust helgi og núna um helgina á hann að gista í íþróttahúsinu með hinum krökkunum úr handboltanum og er ægilega spenntur svo að það er alltaf nóg að gera hjá honum.

Forsetinn kveður!
And may the force be with you!

Ps. Það vantar eginlega svona gestateljara á þetta blog, ég kann bara ekki á það svo endilega kvittð inn í comment dálkinn þegar þið kíkið inn á bloggið eða ef þið kunnið að setja svoleiðis inn þá endilega látið mig vita hvernig á að gera það.

laugardagur, 10. mars 2007

Til hamingju með daginn!!!!!!!!!


Hæ hæ!

Til hamingju með þennan merka dag í sögunni!
Því í dag eru nefnilega 67 ár síðan að hetja sem nefnd var Carlos Ray Norris (aka Chuck Norris) fæddist í þennan heim(1940). Það eru ekki margir sem hafa lifað það af að hafa slegist við Bruce Lee og bjargað heiminum óteljandi sinnum frá hryðjuverkamönnum, geimverum og öxulveldum hins illa.
Og þar að auki leikið í auglýsingum stofnað sjóði til styrktar börnum með hin og þessi vandamál og sjúkdóma, gefið út dagatöl og ótal margt fleira. Og samt haft tíma til að hanna og framleiða sérdeilisprýðilegar gallabuxur eða
"Action Jeans"sem sjást hér á myndinni.

Hef svo sem ekki neinar fréttir héðan úr Borg óttans að þessu sinni enda vill ég ekki skemma afmælisdag kappans með einhverju bulli. En ég mæli með allir skelli sér út á næstu video leigu og taki eins og tvær til þrjár spólur með hetjunni, held bara að það sé ekki hægt að verja helginni betur en að liggja uppi í sófa og virkilega lifa sig inní mynd með Chuck Norris.


Forsetinn kveður!

Ps.
Dagatölin sem Chuck gaf út voru bara með 364 dögum í árinu því fyrsti april var tekinn út og þegar hann var spurður hvers vegna svaraði hann um hæl "Because nobody fools Chuck Norris"

mánudagur, 5. mars 2007

Nóg að gera í skólanum!


Hæ allir!!!
Allt með kyrrum kjörum héðan úr borg óttans (Álaborg) engar óyrðir eða neitt þess háttar, sem betur fer!
Ótruleg læti þarna í Köben það er náttúrulega ekkért í lagi með þetta lið, maður skiptir á einhverja danska sjónvarpsstöð og maður heldur að maður sé að sjá fréttir frá Írak en svo allt í einu fer maður að kannast við eitt og annað á skjánum. Það stingur aðeins í stúf að sjá logandi bíla útum allar götur óyrðalöggur á hlaupum og molotoffkokteitla fjúgandi um loftin en svona er þetta nú í Kaupmannahöfn að næturlagi þessa dagana. Maður skilur eginlega ekki alla þessa skemmdarfýkn hjá þessu liði.
Vesalings fólkið sem á alla þessa bíla og hluti sem hafa verið eyðilagðir. Svo spyr maður sjálfan sig hvað ætli það sé margir af þessum unglingum sem eru þarna með ólæti á röngum forsendum þar að segja eru bara að berjast í einhverri ósýnilegri bylting eða finnst bara svalt að vera með!

En yfir í þetta venjuleg!
Héðan er allt gott að frétta, veðrið bara með ágætum ringdi svolítið í dag ég varð nú svosem ekki mikið var við rigninguna en maður heyrði í henni berjja á plexiglerinu yfir milliganginum í skólanum. Manni finnst vera að fara að vora svona þegar snjórinn er að hverfa þótt þessi snór hafi ekki verið nema hálfan mánuð.
Mikið að gera í skólanum egum að skila gírkassa próékti í næstu viku, dönsku verkefni á miðvikudag og It verkefni á fimmtudag. Finnst þetta svolítið mikið en þetta hlítur að reddast , verður bara að gera það!
Fórum í dýrgarðinn um helgina það er alltaf jafn notalegt að slæpast þar. Fór og beið með börnin í kös eftir að sjá þegar Tígrisdýrunum væri gefið en urðum fyrir vonbrigðum, því Tígrisdýr eru víst einstaklega dönnuð og kurteis þegar kemur að því að éta. Hver tekur sér bara einn bita og leggst með hann eitthvert út í horn, hálf glatað þar sem við bjuggumst við slagsmálum og látum.
annars við það gott, nóg að gera hja öllum í skólanum og öðru.
Ilmur er núna í gestahúsinu, en það er svona einskonar leikskóli þar sem börnin eru þegar dagmömmurnar eru í fríi eða á námskeiðum eins og okkar dagmamma.

Jæja þetta er orðið ágætt!

Hilsen að sinni.
Forsetinn kveður!

Ps. 4 dagar í afmæli ofur hetjunar.
Lengi lifi Chuck Norris!
Seagal hvað! ( þýðir það ekki mávur á ensku)

Hei og munið eftir að commenta!!!!!