laugardagur, 31. mars 2007

Svona er þetta nú skrítið!

Heil og sæl.
Hér skín sólin alla daga og manni finnst sumarið eiginlega vera komið þó það sé bara að rétt að nálgast páska.
Lífið hér í Álaborg gengur bara sinn vanagang.
Það er búið að vera gaman í skólanum í vikunni. Er byrjaður að vinna í þessu verkefni sem ég skrifaði um í síðustu færslu, og bara ágætis grúbba held ég. Nú eru hinir í bekknum lika farnir að fá praktikpláss, eða 7 af 18 komnir með pláss. Kennararnir segja að það aldrei hafa gerst að svo margir eða bara ekki neinn yfirhöfuð hafi verið kominn með pláss fyrir páska fyrr.
Ég hef stundum verið að pæla svolítið í þessu með unga fólkið, tískuna, hárgreiðslur og fleira og hvað manni finnst unga fólkið í dag furðulegt.
En svo vorum við konan að ræða þessi mál aðeins í gær og komumst að trúlegri niðurstöðu um þetta allt saman að mér fannst.
Niðurstaðan var sú að sennilega er það maður sjálfur sem situr eftir á meðan unga fólkið og tískan taka fram úr manni. Og sennilega hefur þetta líka eitthvað með aldurinn og kynslóðabilið að gera, manni finnst maður sjálfur alltaf vera 19 ára og svaka hipp og cool, en sennilega er maður bara gamall og púkó í augum unga fólksins í dag og mér sem fannst ég ennþá tilheyra unga fólks hlutanum af samfélaginu. En er þetta kannski ekki bara líka svona hjá öllum öðrum foreldru, þegar börnin koma hefur maður bara ekki tíma til að fylgjast með tískustraumunum og öllu þessu sem maður fylgdist með áður. Sennilega var þetta líka svona hjá mínum foreldrum þegar ég sjálfur tók upp á því að fylgja einhverjum skrítnum tískubylgjum eins og pönk og rokktískunni á þeim tima og líka foreldrum þeirra þegar hippatiminn var á hæðsta stigi.
Kannski er þetta líka partur í því að verða fullorðinn?
Ætli maður sé ekki bara orðinn dæmigerður ''vísitölufjölskyldumaður''
En þetta er auðvitað bara pæling.

Forsetinn kveður!

Ps. munið að kvitta í comment dálkinn hér að neðan.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig er það á ekkert að fara að bjóða manni í veiði/heimsókn til Baunalands ?
Og jú ég viðurkenni að ég er farinn að finna fyrir þessum ellimerkjum eins og þú, Bara öllu minna múhaha ;)

Nafnlaus sagði...

Það á nú ekki að þurfa að bjóða þér neitt sérstaklega þar sem þú ert alltaf meira en velkominn í heimsókn.

Nafnlaus sagði...

Tek undir það Biggi - þú ert sko einn af þeim sem er bara mest velkominn!

Veit reyndar ekki hvað þú ættir að veiða, tja ekki nema danskar yngismeyjar! ;)

Dísa

Gauti sagði...

já við erum bara að verða gamlir . . það er einmitt á þessu ári sem við förum á fertugsaldurinn . . að verða 30 er ekkert mál . . 30ogeins er mun verra . . þetta er búið !

Næsta skref er að kaupa rauðann blæjubíl og krúsa um með vindinn í hár .. uuu . . með vindinn um skallann og halda að við séum kúl ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,

Enn hvað þú ert duglegur að blogga. Til hamingju með að vera komin með praktik job.

Ég er líka komin með vinnu í sumar. Verð á framkvæmdasviða hjá Íslenskum aðalverktökum. Það á eftir að vera rosa gaman. Byrja 11.júní. Fæ helgina til að jafna mig á 3 vikna reisunni sem ég er að fara í með krökkunum í skólanum. Förum til Dubai, Singapoure og Thailand ;)

Einnig var ég á föstudaginn síðastliðinn kosinn sem formaður nemendafélagsins hérna í byggingarverkfæðinni í æsispennandi kosningum.

Þannig að það er nóg að gera hjá mér.

-----------------------------------
Málið með tískuna hún fer í hringi. Nema hvað að hún breytist lítillega. En í dag virðist allt vera í tísku. Tískan er einhvern vegin saman blanda af öllu.
En vandamálið er það að hún oft klæðir ekki alla.

En talandi um kæðaburð. Ég fór í Hagkaup í kringlunni (matabúðina) um daginn. Ég átti ekki til orð þegar ég sá manneskjuna sem sat við kassan. Ef ég ætti búðina hefði ég aldrei ráðið hana. Hún var þessi Goth týpa það er svo sem allt í lagi með það ef hún getur haldið því fyrir utan vinnuna að einhverju leyti.

Í fyrsta lagi var hún ógeðslega subbuleg til fara.
Í öðrulagi var hún með svartan augnblýant útum allt andlit.
Þetta var mest fráhrindandi afgreiðslu manneskja sem ég hef séð. Síðan var hún ekki að nenna að vera þarna, hún var með mesta fílu svip í heimi.

Það var gömulkona sem ætlaði á þennan kassa hjá henni, leið hún sá stelpu greyið þá snúði hún körfunni og fór frekar á kassa þar sem var biðröð.

En hvernig sem fer með tískuna vona ég svo innilega að hún muni aldrei verða aftur eins og hún var þegar við vorum í grunnskóla.

En ég kveð að sinni Steinar og byð að heilsa Dísu og krökkunum.

Ég ætla að fara halda áfram að læra.

Kveðja
Elsa

Gauti sagði...

ok .. enn ein sönnunin á að við erum gamlir . . samkvæmt kommentinu hérna áðan er pínkulitla systir þín komin í byggingaverkfræði !
hún var nýhætt að borða sand seinast þegar ég vissi ;)