
Hæ allir!!!
Allt með kyrrum kjörum héðan úr borg óttans (Álaborg) engar óyrðir eða neitt þess háttar, sem betur fer!
Ótruleg læti þarna í Köben það er náttúrulega ekkért í lagi með þetta lið, maður skiptir á einhverja danska sjónvarpsstöð og maður heldur að maður sé að sjá fréttir frá Írak en svo allt í einu fer maður að kannast við eitt og annað á skjánum. Það stingur aðeins í stúf að sjá logandi bíla útum allar götur óyrðalöggur á hlaupum og molotoffkokteitla fjúgandi um loftin en svona er þetta nú í Kaupmannahöfn að næturlagi þessa dagana. Maður skilur eginlega ekki alla þessa skemmdarfýkn hjá þessu liði.
Vesalings fólkið sem á alla þessa bíla og hluti sem hafa verið eyðilagðir. Svo spyr maður sjálfan sig hvað ætli það sé margir af þessum unglingum sem eru þarna með ólæti á röngum forsendum þar að segja eru bara að berjast í einhverri ósýnilegri bylting eða finnst bara svalt að vera með!
En yfir í þetta venjuleg!
Héðan er allt gott að frétta, veðrið bara með ágætum ringdi svolítið í dag ég varð nú svosem ekki mikið var við rigninguna en maður heyrði í henni berjja á plexiglerinu yfir milliganginum í skólanum. Manni finnst vera að fara að vora svona þegar snjórinn er að hverfa þótt þessi snór hafi ekki verið nema hálfan mánuð.
Mikið að gera í skólanum egum að skila gírkassa próékti í næstu viku, dönsku verkefni á miðvikudag og It verkefni á fimmtudag. Finnst þetta svolítið mikið en þetta hlítur að reddast , verður bara að gera það!
Fórum í dýrgarðinn um helgina það er alltaf jafn notalegt að slæpast þar. Fór og beið með börnin í kös eftir að sjá þegar Tígrisdýrunum væri gefið en urðum fyrir vonbrigðum, því Tígrisdýr eru víst einstaklega dönnuð og kurteis þegar kemur að því að éta. Hver tekur sér bara einn bita og leggst með hann eitthvert út í horn, hálf glatað þar sem við bjuggumst við slagsmálum og látum.
annars við það gott, nóg að gera hja öllum í skólanum og öðru.
Ilmur er núna í gestahúsinu, en það er svona einskonar leikskóli þar sem börnin eru þegar dagmömmurnar eru í fríi eða á námskeiðum eins og okkar dagmamma.
Jæja þetta er orðið ágætt!
Hilsen að sinni.
Forsetinn kveður!
Ps. 4 dagar í afmæli ofur hetjunar.
Lengi lifi Chuck Norris!
Seagal hvað! ( þýðir það ekki mávur á ensku)
Hei og munið eftir að commenta!!!!!
4 ummæli:
iii ... Hvað með það að Seagal þýði máfur . . ef að Chuck Norris á afmæli 10.Mars þýðir það að hann er í fiskamerkinu . . ekkert voða macho það ! . . máfar borða fiska í morgunmat ! . . og hádegis- og kvöldmat og . . .
Isss piss strákar - ekkert toppar David Hasselhof!
Hasselhoff er það ekki rakspíri?
Hasselhoff er góður í "Spungebob the movie" ;)
Skrifa ummæli