Steinaríkið!
Hvaða endemis vitl.............
mánudagur, 8. febrúar 2010
miðvikudagur, 28. október 2009
sunnudagur, 16. september 2007
Hæ hó!!!
Heil og Sæl !
Nú er um það bil langt síðan ég kom heim úr stríðinu í Langtíburtistan, þar sem ég var í leynilegri sendiför med Chuck nokkrum Norris og fleira eðal fólki sem ég kynntist þar.
Mér virðist nú að það sé öllu hættulegra að búa hér í Evrópu.
Hef ekki verið mjög duglegur við að skrifa neitt á þetta blog dót, en ætla mér að bæta úr því núna. Þó ég haldi nú að það lesi þetta ekki nokkur hræða.
Nú er ég byrjaður að vinna að verkfræðistofunni og líkar bara vel. Þetta virðist vera mikið ágætis fólk sem vinnur þarna og tilbúð að hjálpa manni í einu og öllu.
Forsetinn kveður í bili úr borg óttans!( Álaborg)

mánudagur, 18. júní 2007
Jæja þá er komið að því!

Jæja þá er komið að því, skólinn búinn í bili og ég á leiðinni aftur út til Langtíburtistan í tíu vikna útlegð.Annars hefur allt gengið mjög vel hérna í heimalandi Tuborg.
Ég náði annari hæstu einkunn í loka verkefninu með 10 svo það hefði ekki getað gengið mikið betur nema auðvitað hefði ég náð 11.
Og nú er ég að fara til Kabúl ekki á morgun heldur hinn eða þar að segja á miðvikudag og kem ekki heim fyrr en um miðjan ágúst. Í Kabul verð ég í stöðu gæðaeftirlitsmanns og á að hafa eftirlit með verktaka sem er með ýmiskonar jarðvinnu verkefni og fleira þarna svo þetta verður bara spennandi og gaman að hitta gamla félaga aftur sem eru ennþá þarna út eða komnir aftur, þó það verði auðvitað erfitt að hugsa til þess að vera í burtu frá Dísu og krökkunum í allt sumar. Svo á ég að byrja á verkfræðistofunni 27. águst, svo það verður ekki miklu sumarfríi fyrir að fara en svona er það bara. Ætla nú að reyna að skrifa eitthvað þaðan svo er auðvitað hægt að senda manni línu þar sem ég verð nettengdur þarna úti. Ég setti inn hérna til hægri fyrirsagna link þar sem hægt er að sjá fréttir sem tengjast Afghanistan og Kabúl.
Hérna í Tuborglandi er veðrið búið að vera bara algjört rugl, hitinn verið á milli 20 og 30 gráður seinustu vikur en það rigndi reyndar aðeins um helgina og þá sérstaklega á laugardag og sunnudag þegar Gæi bróðir kíkti hérna til okkar þar sem hann var á ferð hér í danmörku að keppa með landsliði lögreglumanna í fótbolta á norðurlandamóti lögreglumanna. Það var rosa gaman að hitta hann þar sem við höfum ekki sést í tæp tvö ár. Það var auðvitað haldið uppá 17. júní hérna eins og sönnum Íslendingum sæmir í svona líka úrhellis rigningu en það var nú bara hressandi.Ég náði annari hæstu einkunn í loka verkefninu með 10 svo það hefði ekki getað gengið mikið betur nema auðvitað hefði ég náð 11.
Og nú er ég að fara til Kabúl ekki á morgun heldur hinn eða þar að segja á miðvikudag og kem ekki heim fyrr en um miðjan ágúst. Í Kabul verð ég í stöðu gæðaeftirlitsmanns og á að hafa eftirlit með verktaka sem er með ýmiskonar jarðvinnu verkefni og fleira þarna svo þetta verður bara spennandi og gaman að hitta gamla félaga aftur sem eru ennþá þarna út eða komnir aftur, þó það verði auðvitað erfitt að hugsa til þess að vera í burtu frá Dísu og krökkunum í allt sumar. Svo á ég að byrja á verkfræðistofunni 27. águst, svo það verður ekki miklu sumarfríi fyrir að fara en svona er það bara. Ætla nú að reyna að skrifa eitthvað þaðan svo er auðvitað hægt að senda manni línu þar sem ég verð nettengdur þarna úti. Ég setti inn hérna til hægri fyrirsagna link þar sem hægt er að sjá fréttir sem tengjast Afghanistan og Kabúl.
Jæja þetta er orðið ágætt i bili skrifa næst úr gámablokkinni í Langtíburtistan sæl að sinni.
Forsetinn kveður!
Ps. munið að skilja eftir comment!
Forsetinn kveður!
Ps. munið að skilja eftir comment!
þriðjudagur, 15. maí 2007
Han Solo kominn með sumarvinnu!
Haldið ekki að Han Solo sé kominn með sumarvinnu, en Lea Prinssesa verður bara heima að sinna húsverkum og öðru tilfallandi.Áætluð brottför um miðjan júni og heimkoma um miðjan águst. Annars gengur bara allt sinn vanagang
hérna sumarið löngu komið og allt bara eins og best verður á kosið.
Frúin kláraði prófið sitt með stæl og fékk 10!!!
Ég er búinn að vera á fullu að vinna í projektinu mín síðustu vikuna og gengur alveg eftir áætlun.
Það verður nú örugglega svolítið skrítið að koma aftur þarna út til Langtíburtistan en maður þekkir nú aðstæður nokkuð vel og líka eitthvað af fólkinu, en samt skrítið þegar maður er búinn að vera í svona löngu fríi en þetta er auðvitað ómetanlegt tækifæri fyrir mann og rosalega skemmtilegt.
Forsetinn kveður!
ps. megi mátturinn vera með ykkur!
föstudagur, 4. maí 2007
Hæ hó og jibí jey..........
Hæ!
Það hefur verið heldur mikið að gera í skólanum upp á síðkastið með skil á verkefnum og þess háttar svo ég hef bara hreinlega ekki nennt að blogga. Það er nú í lagi að vera svolítið latur stundum. En hvað um það.
Hérna í Danaveldi skín sólin alla daga og hitinn verið 15-16 gráður í forsælu en 20+ þar sem sólin nær að skína á mann. Hérna höfum við það bara rosalega gott.
Núna væri géggjað að eiga mótorhjól !!. En svona er þetta bara þegar maður er fátækur námsmaður, en ég stefni á að vera kominn á hjól fyrir fimmtugt þannig að nú eru 19 ár til stefnu.
19 ár í fimmtugt pælið í því svakalega er maður orðinn gamall, maður er bara kominn inn í seinni hálfleik!. Manni finnst stundum eins og klukkan gangi aðeins of hratt.
Ég og grúbban mín náðum að skila annex projektinu á réttum tíma og fengum mjög góða dóma fyrir verkefnið.
Set inn tvær myndir af fremleggelses plötunni okkar.

Svo núna er ég að byrja á því næsta sem er míní projekt þar sem þarf að vinna verkefnið upp á eigin spítur, þar að segja aleinn og sjálfur. Ég hef valið að hanna og teikna bílskúr , ekki bara einhvern bílskúr heldur minn drauma bílskúr ca 60-70 fermetra sem skal rúma 1 stk Ford F150, 3 Harley, sófa og ísskáp fyrir bjórinn. Og í þetta verkefni fæ ég þrjár vikur, vona að það takist. Ég held að maður egi nú kannski ekki eftir að hafa mikinn tíma aflögu í að vera að skrifa mikið inn á þetta blogg en maður veit að sjálfsögðu aldrei.
Med venlig hilsen!
Forsetinn
(Kominn inní seinni hálfleik)

mánudagur, 16. apríl 2007
Það er komið sumar!

Hæ hæ!
Héðan er allt gott að frétta, sumarið komið og búið að vera 20+ í nokkra daga núna.
Skelltum okkur upp í Blockhus um páskana og vorum á svona ferie hoteli. Það var ótrúlega notalegt að vera þar og háma í sig íslensk páskaegg og slappa af þar er líka yfirbyggt sundlaugaland, strönd og allskins skemtilegi hlutir að gera fyrir börn. Það var ekkert sérstakt veður, kom meira að segja slydda á tímabili en það var allt í lagi
Annars er maður bara á kafi í bókunum þar sem það líður að skiladegi á verkefninu sem við erum að vinna að núna.

Það var einn stunginn til bana hérna í Álaborg (Borg óttans) um daginn í Jómfrú anne gade sem er svona kráargata hérna niðri í bæ. Svo nú er maður byrjaður á fullu í Karate. Er að hugsa um að byrja að safna hári svona allavega þar sem það vex enþá, safna alskeggi, lita það ljóst og sækja um nafn breytingu úr Steinar í Chuck.
En svona öllu gríni slept er ég byrjaður að æfa Karate með tveimur bekkjarfélögum mínum og það er bara ótrúlega gaman, þessar æfingar eru á mjög léttum nótum svo það er stutt niður á grínið.
Fórum á season slútt morgunverð hjá HK Star um helgina, sem er handboltaklúbburinn sem Axel æfir með.Setti inn eina mynd af stoltum markverði með viðurkenningar gripinn.
Skrup
pum með vina fólki okkar út í eyjuna Egholm það er pínulítil eyja hérna úti í Limfirðinum og það var alveg meiri háttar gaman enda veðri með besta móti.(20+)Löbbuðum þar um í góða veðrinu með krakkana og borðuðum nesti eins og alvöru danir.
Segi þetta gott að sinni.
Forsetinn Kveður!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)