mánudagur, 16. apríl 2007

Það er komið sumar!





Hæ hæ!

Héðan er allt gott að frétta, sumarið komið og búið að vera 20+ í nokkra daga núna.
Skelltum okkur upp í Blockhus um páskana og vorum á svona ferie hoteli. Það var ótrúlega notalegt að vera þar og háma í sig íslensk páskaegg og slappa af þar er líka yfirbyggt sundlaugaland, strönd og allskins skemtilegi hlutir að gera fyrir börn. Það var ekkert sérstakt veður, kom meira að segja slydda á tímabili en það var allt í lagi
Annars er maður bara á kafi í bókunum þar sem það líður að skiladegi á verkefninu sem við erum að vinna að núna.
Það var einn stunginn til bana hérna í Álaborg (Borg óttans) um daginn í Jómfrú anne gade sem er svona kráargata hérna niðri í bæ. Svo nú er maður byrjaður á fullu í Karate. Er að hugsa um að byrja að safna hári svona allavega þar sem það vex enþá, safna alskeggi, lita það ljóst og sækja um nafn breytingu úr Steinar í Chuck.
En svona öllu gríni slept er ég byrjaður að æfa Karate með tveimur bekkjarfélögum mínum og það er bara ótrúlega gaman, þessar æfingar eru á mjög léttum nótum svo það er stutt niður á grínið.
Fórum á season slútt morgunverð hjá HK Star um helgina, sem er handboltaklúbburinn sem Axel æfir með.Setti inn eina mynd af stoltum markverði með viðurkenningar gripinn.
Skruppum með vina fólki okkar út í eyjuna Egholm það er pínulítil eyja hérna úti í Limfirðinum og það var alveg meiri háttar gaman enda veðri með besta móti.(20+)
Löbbuðum þar um í góða veðrinu með krakkana og borðuðum nesti eins og alvöru danir.
Segi þetta gott að sinni.

Forsetinn Kveður!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

:) Bara slydduél hér og fínt !

En varstu ekki búinn að heyra af vinstrihandar höggunum og hringspörkunum mínum ?
Skora á þig í einvígi við heimkomu !

Gauti sagði...

hei töff þessi "youtube clips" hjá þér . . ég verð að læra að gera svona

Gauti sagði...

hæ man . . varstu búinn að sjá þetta :

http://www.blog.central.is/akranes76

ég var að frétta af þessu

Gauti sagði...

hei töff . . top gear clips . . ég segi að "the Stig" sé Jenson Button