þriðjudagur, 15. maí 2007

Han Solo kominn með sumarvinnu!

Haldið ekki að Han Solo sé kominn með sumarvinnu, en Lea Prinssesa verður bara heima að sinna húsverkum og öðru tilfallandi.
Áætluð brottför um miðjan júni og heimkoma um miðjan águst. Annars gengur bara allt sinn vanagang
hérna sumarið löngu komið og allt bara eins og best verður á kosið.
Frúin kláraði prófið sitt með stæl og fékk 10!!!
Ég er búinn að vera á fullu að vinna í projektinu mín síðustu vikuna og gengur alveg eftir áætlun.
Það verður nú örugglega svolítið skrítið að koma aftur þarna út til Langtíburtistan en maður þekkir nú aðstæður nokkuð vel og líka eitthvað af fólkinu, en samt skrítið þegar maður er búinn að vera í svona löngu fríi en þetta er auðvitað ómetanlegt tækifæri fyrir mann og rosalega skemmtilegt.

Forsetinn kveður!
ps. megi mátturinn vera með ykkur!

föstudagur, 4. maí 2007

Hæ hó og jibí jey..........

Hæ!

Það hefur verið heldur mikið að gera í skólanum upp á síðkastið með skil á verkefnum og þess háttar svo ég hef bara hreinlega ekki nennt að blogga. Það er nú í lagi að vera svolítið latur stundum. En hvað um það.
Hérna í Danaveldi skín sólin alla daga og hitinn verið 15-16 gráður í forsælu en 20+ þar sem sólin nær að skína á mann. Hérna höfum við það bara rosalega gott.
Núna væri géggjað að eiga mótorhjól !!. En svona er þetta bara þegar maður er fátækur námsmaður, en ég stefni á að vera kominn á hjól fyrir fimmtugt þannig að nú eru 19 ár til stefnu.
19 ár í fimmtugt pælið í því svakalega er maður orðinn gamall, maður er bara kominn inn í seinni hálfleik!. Manni finnst stundum eins og klukkan gangi aðeins of hratt.
Ég og grúbban mín náðum að skila annex projektinu á réttum tíma og fengum mjög góða dóma fyrir verkefnið.
Set inn tvær myndir af fremleggelses plötunni okkar.

Svo núna er ég að byrja á því næsta sem er míní projekt þar sem þarf að vinna verkefnið upp á eigin spítur, þar að segja aleinn og sjálfur. Ég hef valið að hanna og teikna bílskúr , ekki bara einhvern bílskúr heldur minn drauma bílskúr ca 60-70 fermetra sem skal rúma 1 stk Ford F150, 3 Harley, sófa og ísskáp fyrir bjórinn. Og í þetta verkefni fæ ég þrjár vikur, vona að það takist. Ég held að maður egi nú kannski ekki eftir að hafa mikinn tíma aflögu í að vera að skrifa mikið inn á þetta blogg en maður veit að sjálfsögðu aldrei.

Med venlig hilsen!
Forsetinn
(Kominn inní seinni hálfleik)