mánudagur, 16. apríl 2007

Það er komið sumar!





Hæ hæ!

Héðan er allt gott að frétta, sumarið komið og búið að vera 20+ í nokkra daga núna.
Skelltum okkur upp í Blockhus um páskana og vorum á svona ferie hoteli. Það var ótrúlega notalegt að vera þar og háma í sig íslensk páskaegg og slappa af þar er líka yfirbyggt sundlaugaland, strönd og allskins skemtilegi hlutir að gera fyrir börn. Það var ekkert sérstakt veður, kom meira að segja slydda á tímabili en það var allt í lagi
Annars er maður bara á kafi í bókunum þar sem það líður að skiladegi á verkefninu sem við erum að vinna að núna.
Það var einn stunginn til bana hérna í Álaborg (Borg óttans) um daginn í Jómfrú anne gade sem er svona kráargata hérna niðri í bæ. Svo nú er maður byrjaður á fullu í Karate. Er að hugsa um að byrja að safna hári svona allavega þar sem það vex enþá, safna alskeggi, lita það ljóst og sækja um nafn breytingu úr Steinar í Chuck.
En svona öllu gríni slept er ég byrjaður að æfa Karate með tveimur bekkjarfélögum mínum og það er bara ótrúlega gaman, þessar æfingar eru á mjög léttum nótum svo það er stutt niður á grínið.
Fórum á season slútt morgunverð hjá HK Star um helgina, sem er handboltaklúbburinn sem Axel æfir með.Setti inn eina mynd af stoltum markverði með viðurkenningar gripinn.
Skruppum með vina fólki okkar út í eyjuna Egholm það er pínulítil eyja hérna úti í Limfirðinum og það var alveg meiri háttar gaman enda veðri með besta móti.(20+)
Löbbuðum þar um í góða veðrinu með krakkana og borðuðum nesti eins og alvöru danir.
Segi þetta gott að sinni.

Forsetinn Kveður!

föstudagur, 6. apríl 2007

Upp með stuttbuxurnar!


Hæ hæ!

Héðan er allt gott að frétta .
Sumarið endanlega komið, allavega er ég búinn að rífa fram stuttbuxurnar.

Nú eru allir komnir í páska frí og nú á bara að reyna að njóta þess að vera í fríi.
Þó svo ég þurfi nú svolitið að teikna og læra nú um páskana í sambandi við grubbu projektið.
En það ætti ekki að vera neitt mál. Þessi grúbbuvinna gengur bara mun betur en ég bjóst við, allir mjög áhugasamir um verkefnið.
Nenni nú ekki að skrifa mjög mikið í dag en ætla bara að láta fylgja nokkrar myndir með þessari færslu krökkunum og nýja kanínubúrinu sem nágrannakona okkar gaf okkur. En í því bua kanínan Pjúske og naggrísinn Max.

Forsetinn kveður!

Ps. Gleðilega Páska