þriðjudagur, 27. mars 2007

Kominn tími til !!



Hæ Hæ !!!!!

Flott grein um Inga þór í fréttablaðinu á sunnudaginn, það var tími til kominn að einhver reif sig upp af rassgatinu og kom með raunverulega mynd af því hvernig er að vinna á alþjóðaflugvellinum í Kabúl og greindi frá því hversu mikil endemis vitleysa þessi videomynd sem tekin var af okkur sem vorum vinna þarna úti sumarið 2004 var. Og að íslenskir friðargæsluliðar sé ekki þarna í einhverjum Rambóleik!
Já Ingi þór klikkar ekki á því!Og ekkert smá flottur
með skeggið.
Þessa grein er finna með því að smella á linkinn hérna fyrir ofan og fletta á síðu 18 í fréttablaðinu á sunnudaginn.

Held bara að sumarið sé komið hérna í Danaveldi, búið að vera tíu til fimmtán stiga hiti og sól í nokkra daga. Svo maður er búinn að vera heilmikið úti, að taka aðeins til í garðinum og svona.
Annars er maður bara að dúttla í skólanum vorum að byrja á nýju projekti í dag þar sem við þurfum að hanna og teikna gestahús við sumarhús og þurfum að fylgja allslags lögum og reglugerðum við að finna út úr því, hljómar kannski ekki mjög spennandi en mér finnst það nú samt og mjög gaman að vinna í svona grúbbuvinnu þar sem maður fær tækifæri á að vinna með einhverjum nýjum í hverju verkefni.
Eini gallinn við svona grúbbuvinnu er að það eru svona einstaka bjánar sem ná að fljóta með án þess að vita neitt í sinn haus sem er mjög leiðinlegt fyrir okkur hin sem neyðumst til að halda þessum bjánum uppi ef við lendum með þeim í grúbbu. Ég var svo óheppinn að fá einn bjánann í mína grúbbu svo næstu vikur gætu orðið strembnar fyrir okkur hin í grúppunni, þó svo við höfum nú fengið skárri bjánann af tveimur slæmum.
Og svona fyrir þá sem ekki vita þá er ég að læra Teknisk Design við Aalborg Tekniske Skole.
Allt orðið niðurnelgt með praktíkina fór á fund með skrifstofustjóra og teiknistofustjóra verkfræðistofunnar í dag og við skrifuðum undir samninginn.
Jæja þá er þetta nú orðið gott að sinni!(er kominn með krampa í fingurnar á þessu pikki)


Forsetinn kveður !!!!!
ps. Munið að kvitta!!!!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Djíses hvað er með þessi upphrópunarmerki maður!!! Maður gæti haldið að þú fengið enga athygli heima hjá þér!!!!!

lof jú
Dísa !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Gauti sagði...

fín grein . . þú ert líka fínn ;) . . ég hef sem betur fer ekki lent með fíbblum í hóp en hef séð aðra lenda í því og það er ekki gaman.
og talandi um að kvitta . .hvenær kvittaðir þú síðast á bloggið mitt ! . . haaa ;)

Nafnlaus sagði...

Merkilegur maður þessi Ingi, mann langar nú að fræðast meira um þetta eftir að lesa greinina hans. :)

Nafnlaus sagði...

Touché Gauti!
Ég er alltaf að segja honum þetta þegar hann situr grátandi fyrir framan tölvuna og heldur að hann sé einn í heiminum því nánast enginn kvittar! ;)

Gauti sagði...

svo má nú koma meira en "kvitt" næst . . gaman að fá álit á því sem maður er að skrifa . . en takk samt