laugardagur, 17. mars 2007

Jæja!

Heil og sæl!

Allt gott að frétta héðan úr höfuðborg norður Jótlands.
Búinn að vera svolitil pressa á manni í skólanum síðustu vikur því við höfum þurft að skila þremur verkefnum síðan ég skrifaði síðast. Smá mont, mín gruppa fékk lang bestu gagnrýnina fyrir gírkassa verkefnið sem ég var búinn að segja frá hér á síðunni áður þó að væru auðvitað eitthvað af villum svona hist og her, mjög gaman þegar manni gengur vel, peppar mann líka aðeins upp í þessu. Það er búið að vera mjög gaman í skólanum núna þar sem við erum líka aðeins farinn að fá að spreita okkur á að að teikna í þrívídd.
Er búinn að fara í eitt viðtal vegna praktíkpláss, mér fannst það ganga mjög vel en nú verður maður bara að bíða eftir svari, á að fá svar innan tíu daga. Þetta viðtal var hjá stóru verkfræði fyrirtæki hér í Álaborg, er búinn að fá annað viðtal núna 27 mars hjá kommúnunni í Frederikshavn, ég læt vita hvernig það fer. Vildi að stundum að mér hefði þótt svona gaman í skólanum þegar ég var yngri þá hefði maður kannski lært eitthvað, td. verið betri í dönsk en það er nú allt að koma hjá manni.
Ótrúlega fyndið hvað maður er orðinn gamall miðað við þessa táninga sem eru með manni í skólanum og mér finnst táningarnir í dag líka öðruvísi en fyrir fimmtán árum þegar ég var 15, man til dæmis ekki eftir því að hafa þurft að bíða í röð til að komast á klósettið vegna þess að allir strákarnir lafa fyrir framan speglana að laga á sér hárið með allskyns klístur efnum, þetta heitir að vera metrosexual held ég. Minnir að 91´hafi strákar bara verið með annað hvort stutt eða sítt hár og ekki lagt neitt meiri pælingu í það. En það er kannski bara ég sem er farinn að gleyma sökum elli.
Annars gengur bara allt sinn vana gang Dísa er á fullu að skrifa verkefnið sitt, Ilmur er búin að vera síðustu tvær vikur í gesta húsinu, og er búin að vera mjög ánægð þar enda fullt af krökkum að leika við þar.
Axel er í ströngum æfingum fyrir "Scenen er din" núna 23 mars í skólanum þessa dagana það er svona hæfileikasýning þar sem sem krakkarnir stíga á svið og syngja og dansa fyrir foreldra, kennara og aðra nemendur, við hlökkum mikið til. Svo var hann á handbolta móti um síðust helgi og núna um helgina á hann að gista í íþróttahúsinu með hinum krökkunum úr handboltanum og er ægilega spenntur svo að það er alltaf nóg að gera hjá honum.

Forsetinn kveður!
And may the force be with you!

Ps. Það vantar eginlega svona gestateljara á þetta blog, ég kann bara ekki á það svo endilega kvittð inn í comment dálkinn þegar þið kíkið inn á bloggið eða ef þið kunnið að setja svoleiðis inn þá endilega látið mig vita hvernig á að gera það.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er nú bara orðin fín lína á milli þess að vera metrosexual og homosexual. Allt í lagi að vera snyrtilegur en öllu má nú ofgera.