Hérna í Danmörku er allt við það sama meira eða minna snjóar enþá, ringdi samt aðeins í gær þó ekki nóg til ad bræða allan snjóinn. Þegar maður hefur nú aðeins komið nálægt snjóruðningi á Íslandi finnst manni þetta nú hálfgerðir Álfar hérna í baunalandi en svona er það bara, það geta ekki allir verið sérlegir sérfræðingar frá Íslandi!
Skólinn byrjadi aftur í dag eftir eina viku í vetrarfríi í snjónum sem er bara mjög fínt, ég held maður megi ekki taka of mikið frí því þá ryðgar maður bara. Fyrsti skóladagurinn byrjaði á dönsku þar sem allir fengur gagnrýni á verkefni sem vid áttum ad vera búin ad skila, ég var sem betur fer einn af þeim sem búin var ad skila en ég fékk samt svolitla gagnrýni fyrir haug af stafsetningar villum en svona er þetta bara maður reynir bara ad gera betur næst, þad myndi sennilega hjálpa ef ég ætti word á dönsku. Þarf að reyna að redda mér því.
Erum líka að vinna í gruppuvinnu við að hanna gírkassa með niðurgírun frá 1500 snúningum á mínútu niður í 540 snúninga, sem er mjög skemmtilegt svolítið mikil stærðfræði en samt áhugavert.
Sniðugt jókið með tannlækninn sem er með stofu heima hjá mömmu sinni og stoppaði ekki síminn hjá honum!!
Endilega munið að kvitta í commentinn svo maður viti hvort það les þetta einhver!
Jæja þetta er orðið gott að sinni.
Okkur líður bara mjög vel hérna í snjónum
Forsetinn kveður!!
Ps. Munið að taka hringspark 10 mars til heiðurs Chuck!
4 ummæli:
Gaman að sjá að það er vetur einhversstaðar. Hér á klakanum er maður bara að spá í að mála bílskúrinn. Bið að heilsa fjölskyldunni og Jomfru Anne Gade.
Gréta og Bjarni litu við og fengu sér kaffi!!!!
Til lukku með síðuna ;)
Segðu bara til ef þig vantar word á dönsku - allt til á þessum bæ júnó!!!!
Smá Chuck Norris facts :)
- There is no such thing as global warming. Chuck Norris was cold, so he turned the sun up.
-There is no theory of evolution. Just a list of animals Chuck Norris allows to live.
Og síðast en ekki síst
- On his birthday, Chuck Norris randomly selects one lucky child to be thrown into the sun.
piff .. Steaven Seagal er miklu flottari . . hann kann að spila Blús ! . . ;)
Skrifa ummæli