Hérna á norður Jótlandi er allt hálf lamað vegna ófærðar, flestar húsagötur ófærar, strætó gengur ekki enda all margir stætóar og bílar fastir í sköflum á víð og dreif um bæinn. Það er eins þeir sem sjá um snjómokstur hér í Danmörku horfi ekki á veðurfréttir og þess vegna með allt niðrum sig loks þegar byrjaði að snjóa.
Við strákarnir erum samt hæst ánægðir með þetta allt saman vorum úti í þrjá klukkutíma í morgum að böglast við að moka göng og snjóhús hérna í hverfinu.Axel er búinn að vera úti meira eða minna í allan dag að moka.Hvað er þetta með íslenska ráðamenn og klám, nú held ég að þeir séu alveg að ganga af göflunum. Það verður gaman að sjá hvað þeim dettur í hug að banna næst!. Þetta er nú farið að minna heldur mikið á Kína, Gömlu Soviétríkinn eða eitthvað annað kommúnistaríki finnst mér.
Nú þarf islenska ferðamálaráðið að fara að gefa út ítarlegan bækling fyrir ferðamenn þar sem tekið er fram td hvaða áhugamál og fatasmekk erlendirferðmenn mega ekki hafa ef þeir vilja komst inn í Ísland.

Bæklingurinn gæti verið eitthvað á þessa leið, bannað að hafa áhuga á klámi, og bannað að ganga í gulum fötum.
Ísland er greinilega ekki fyrir alla!
Frá því yfir í eitthvað allt annað!
Mér finnst að 10 mars ætti að vera alheims hátíðardagur því þá á ofurhetjan Carlos Ray Norris (aka, Chuck Norris ) afmæli og verður hvorki meira né minna en 67 ára, sem er svo sem ekki neinn aldur fyrir hetjur eins og Chuck.
Það er hægt að setja inn comment eða skilaboð fyrir neðan hverja færslu svona fyrir ykkur sem kannist við mig og viljið setja inn kveðju eða eitthvað svoleiðis.
Hilsen að sinni Forsetinn
Ps. Lengi lifi Chuck Norris
2 ummæli:
Góður!
Hér syðra er bara endalaus rigning . . fínt sollis ;)
Skrifa ummæli