Veturinn kominn!
Eða allaveg smá sýnis horn.
Fréttirnar kalla þetta "Snestorm" og Danski herinn kominn í viðbragðsstöðu með brynvarða APC skriðdreka til björgunarstarfa eins og um seinni Ísöldina sé að ræða. En þetta er nú ekki neitt óveður á Íslenskan mælikvarða bara smá snjókoma. Krakkarnir eru hæst ánægðir með þetta. Þó sumt fullorðna fólkið sé ekki á sama máli. Það er mikið af Dönum enþá á sumardekkjum því engum datt í hug að veturinn kæmi úr þessu.
Þetta er aðeins öðruvísi í ár en í fyrra þegar var ískalt og snjóaði heilmikið og snjóþotur urðu uppseldar í september eða eitthvað álíka því Danir eru svolítð skrítnir að því leiti að þeir vilja helst ekki liggja með neitt á lager svo þegar vara klárast er hún bara uppseld þangað til næsta vetur, segja svo sér til varnar að það sé svo stutt að sækja vörurnar til meginlands evrópu. Samt tekur 4-10 vikur að bíða eftir hlutum ef þeir eru ekki til á lager.
Sakna Íslands svolítið að því leiti, hef bara ekki þolinmæð í að bíða eftir öllum sköpuðum hlutum. Ef hlutir eru ekki til á lager eiga þeir ekki að vera til sölu!!
Hilsen!
Forsetinn.(Ánægður með snjóinn en alltaf jafn hneikslaður á Baunum)
1 ummæli:
hei . . gaman að sjá þig blogga.
Það er nú svo hlítt hérna fyrir sunnan að þetta varð allt að rigningu, enginn snjór hér.
Mikið innilega er ég sammála þér með lagerleysið og biðina !
Maður fattar ekki mánuð áður en mann vantar eitthvað að mann á eftir að vanta eitthvað eftir mánuð.
Skrifa ummæli