
Jæja þá er komið að því, skólinn búinn í bili og ég á leiðinni aftur út til Langtíburtistan í tíu vikna útlegð.Annars hefur allt gengið mjög vel hérna í heimalandi Tuborg.
Ég náði annari hæstu einkunn í loka verkefninu með 10 svo það hefði ekki getað gengið mikið betur nema auðvitað hefði ég náð 11.
Og nú er ég að fara til Kabúl ekki á morgun heldur hinn eða þar að segja á miðvikudag og kem ekki heim fyrr en um miðjan ágúst. Í Kabul verð ég í stöðu gæðaeftirlitsmanns og á að hafa eftirlit með verktaka sem er með ýmiskonar jarðvinnu verkefni og fleira þarna svo þetta verður bara spennandi og gaman að hitta gamla félaga aftur sem eru ennþá þarna út eða komnir aftur, þó það verði auðvitað erfitt að hugsa til þess að vera í burtu frá Dísu og krökkunum í allt sumar. Svo á ég að byrja á verkfræðistofunni 27. águst, svo það verður ekki miklu sumarfríi fyrir að fara en svona er það bara. Ætla nú að reyna að skrifa eitthvað þaðan svo er auðvitað hægt að senda manni línu þar sem ég verð nettengdur þarna úti. Ég setti inn hérna til hægri fyrirsagna link þar sem hægt er að sjá fréttir sem tengjast Afghanistan og Kabúl.
Hérna í Tuborglandi er veðrið búið að vera bara algjört rugl, hitinn verið á milli 20 og 30 gráður seinustu vikur en það rigndi reyndar aðeins um helgina og þá sérstaklega á laugardag og sunnudag þegar Gæi bróðir kíkti hérna til okkar þar sem hann var á ferð hér í danmörku að keppa með landsliði lögreglumanna í fótbolta á norðurlandamóti lögreglumanna. Það var rosa gaman að hitta hann þar sem við höfum ekki sést í tæp tvö ár. Það var auðvitað haldið uppá 17. júní hérna eins og sönnum Íslendingum sæmir í svona líka úrhellis rigningu en það var nú bara hressandi.Ég náði annari hæstu einkunn í loka verkefninu með 10 svo það hefði ekki getað gengið mikið betur nema auðvitað hefði ég náð 11.
Og nú er ég að fara til Kabúl ekki á morgun heldur hinn eða þar að segja á miðvikudag og kem ekki heim fyrr en um miðjan ágúst. Í Kabul verð ég í stöðu gæðaeftirlitsmanns og á að hafa eftirlit með verktaka sem er með ýmiskonar jarðvinnu verkefni og fleira þarna svo þetta verður bara spennandi og gaman að hitta gamla félaga aftur sem eru ennþá þarna út eða komnir aftur, þó það verði auðvitað erfitt að hugsa til þess að vera í burtu frá Dísu og krökkunum í allt sumar. Svo á ég að byrja á verkfræðistofunni 27. águst, svo það verður ekki miklu sumarfríi fyrir að fara en svona er það bara. Ætla nú að reyna að skrifa eitthvað þaðan svo er auðvitað hægt að senda manni línu þar sem ég verð nettengdur þarna úti. Ég setti inn hérna til hægri fyrirsagna link þar sem hægt er að sjá fréttir sem tengjast Afghanistan og Kabúl.
Jæja þetta er orðið ágætt i bili skrifa næst úr gámablokkinni í Langtíburtistan sæl að sinni.
Forsetinn kveður!
Ps. munið að skilja eftir comment!
Forsetinn kveður!
Ps. munið að skilja eftir comment!
3 ummæli:
Góða ferð Steinar - ég skal lofa því að passa konuna, börnin og hundinn fyrir þig, eins vel og ég get.... Mín útlegð er víst bara í Hjörring - þannig að það ætti að hafast.
EN góða skemmtun og hafðu það rosa gott í þessar 10 vikur
kv frá Blaakildevejliðinu
hei man . . steingleimdi eins og fíbbl að heyra aftur í þér áður en þú fórst . . hausinn annarstaðar . . skóli þúveist
Þú ferð varlega meððig og svo reynum við að gera eitthvað hressandi þegar þú kemur aftur.
osso hvað . . engin ferðasaga ?
Skrifa ummæli